Haukur
Klukkan
23.01.2010 19:12:17 / hadagu

daddaradadahhh

Eru eithvað fólk ennþá að lesa bloggið mitt?
Bara pæling.

» 1 hafa sagt sína skoðun

08.01.2009 20:55:12 / hadagu

Gleðilegt ár eða whatever......

Jæja, nú erum við Rakel loksins alveg flutt. Búin að fá þvottavél og ísskáp og kominn með flest allt annað í búið líka. Fórum í dag og fengum okkur adsl tengingu og heimasíma sem ætti að kicka inn vonandi á mánudag eða þriðjudag þannig að hlutirnir hjá okkur geta loksins farið að festa sig aftur í fastar skorður, búið að vera alveg endalaust mikið eithvað að gera seinustu 3 vikur, erum búinn að þurfa að vera að redda endalausu shitti fyrir íbúðina sem er að mestu leyti allt búið, svo erum við búinn að vera í endalausum matarboðum og fá fólk í heimsókn og svo er maður að reyna að æfa með og vinna líka, þannig að gamli Rauður er búinn að vera nokkuð lúinn svona upp á síðkastið og í dag, en núna er ég að fara í helgarfrí og næ vonandi að slaka vel á og hlaða batteríin.

En fyrir utan það er ekkert smá þægilegt að vera kominn með stóra og góða íbúð og hafa nóg af plássi, ég var farinn að vera geðveikur að búa í gamla kjallaraherberginu sem ég var í, maður þurfti alltaf að troða sér inn þar sem við vorum komin með svo mikið af drasli í það og ef maður var inni í herberginu þá var ekki hægt að gera neitt annað en hanga upp í rúmmi þar sem það tók allt plássið í herberginu.

Svo er ég alveg alsæll í nýja jobbinu mínu hjá Tollinum, er loksins að verða kominn yfir hjallann þar sem ég er njúbíið og veit ekki neitt og er endalaust spyrrjandi einhverja óþolandi spurninga, þannig að núna get ég bara verið að vinna og bösta glæpamenn.. Líka gaman að geta bara klárað málin í þessu starfi sjálfur, þarf ekki að standa í einhverju rugli eins og hjá Securitas í gamla daga þegar það þurfti alltaf að kalla til Lögreglu eða tengiliði til að koma og klára pakkann, hérna kæri ég bara viðkomandi og hann verður bara að sætta sig við það og hananú :p.

Svo er stefnan hjá mér á þessu ári að reyna að koma mér eithvað í keppnisgírinn aftur, ætla að reyna að fara á Opna Belgíska og/eða opna hollenska meistaramótið og vonandi einhver fleirri, fer eftir því hvernig barátta okkar ástkæru krónu á eftir að standa sig og hvað þetta á eftir að kosta, veit samt ekki hvort ég nenni að reyna að koma mér í landsliðið núna eins og er, hef ekki alveg tíma til að vera með einhverja skyldumætingu á æfingar í hverri viku, reyni kannski að koma mér í liðið í sumar eða haust, fer eftir hvernig vinnan hjá mér verður og hvað ég geri, hvort ég dembi mér aftur út í eithvað nám or some.....

En nóg um það allt í bili.
   Haldiði því raunverulegu.
            Hr. Haukur Daði Guðmundsson.



» 0 hafa sagt sína skoðun

06.12.2008 09:54:04 / hadagu

Kominn með íbúð

Jæja, hvað er svo að frétta? hef ekki bloggað alveg heillengi, enda er það nú ekki eithvað æðislegt.
En allavega, þá vorum við Rakel að skrifa undir leigusamning í gær og erum við að fara að flytja inn bara á næstu 2 vikum, fengum lykilinn og alles. Þurfum samt að redda okkur ísskáp og þvottavél en vonandi er það að reddast. Verð nú að segja að ég er nokkuð spenntur að fara að flytja, held að þetta eigi eftir að verða æði, íbúðinn er allavega 82 fm þannig að við höfum nóg af plássi.

Annars er ég nýbúinn að skríða upp úr einhverjum skítaveikindum, held að þetta séu lengstu veikindi sem ég hef fengið á þessu ári, byrjaði á að fá hita og var svo með lungnabólgu í 3 vikur, þannig að basicly var ég veikur í mánuð og gat ekkert æft, en núna er ég byrjaður aftur og finn að krafturinn er að koma hægt og rólega tilbaka, fór að lyfta í gær og náði að cleana 100 kg, Ég var nokkuð sáttur með það miðað við hvað ég er búinn að vera mikið veikur.

En já, 18 dagar til jóla, það er ekkert smá hvað tíminn líður hratt, mér finnst bara að jólin hafi verið í seinasta mánuði, en mér hlakkar samt til, ég er algjört jólabarn :D , ég verð samt að vinna á aðfangadag og jóladag sem er nokkuð fúllt en það verður bara að hafa það, fæ gott hátíðarálag fyrir það.

En nóg um það í bili...
 BÆJÓ....


» 0 hafa sagt sína skoðun

30.09.2008 19:39:21 / hadagu

HÆTTUR

Jæja, þá er loksins komið að því að ég er hættur hjá securitas, eftir að hafa unnið þarna í langan tíma fannst mér loksins vera kominn tími á að hætta, sérstaklega þar sem ég var farinn að verða ein af risaeðlunum á vaktinni, með starfsaldur að segja.  Verð nú samt að taka fram að það var snilldarstarfsfólk sem ég var að vinna með þarna og ég á eftir að sakna margra.

En þann 8 Okt. byrja ég svo að vinna hjá Tollstjóranum í Rvk. og hlakkar mér nú soldið til þess að byrja þar, þá verð ég laus við allt áreitið í vinnunni sem var hjá securitas og ekki sakar það nú að fá smá aukalaunahækkun.

En nóg um það ...
    LOVE TO YA ALL.....
     .........The Hawk.........


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.08.2008 20:48:40 / hadagu

Pælingar

Jæja, nú er vinnuvikan að líða undir lok og ekkert fram undan nema menningarnótt á laugardaginn, ætli maður fari ekki í eithvað partý og endi fullur niðri í bæ og endi á því að þurfa rölta heim þar sem leigubílaröðin verður líklegast lengri en andskotinn Annars er ég búinn að vera svo duglegur upp á síðkastið, búinn að taka nokkrar aukavaktir og búinn að borga upp allar skuldirnar mínar loksins. Nokkur ár af keppnum utanlands og stífar æfingar skildu eftir sig stóran pakka af skuldum og leiðindum.
En jæja, seinustu daga hef ég verið að spá mikið hvað ég á að gera í framtíðinni og ég held að tae kwon do sé að tapa baráttunni um einhver stór framtíðarplön, held að ég fari jafnvel að leggja tae kwon do skóna á hilluna og dembi mér bara af krafti í nám. Ekkert búinn að vera neitt voðalega æstur að æfa svona núna upp á síðkastið út af ýmsum ástæðum sem ég ætla ekkert að fara út í.

En já, fyrir ykkur skemmtilega og fallega fólk sem ætlið að gera eithvað skemmtilegt á menningarnótt, þá verðið þið að vera í bandi og fá ykkur einn kaldan með gamla.....

Sé ykkur.



» 1 hafa sagt sína skoðun

02.07.2008 11:27:27 / hadagu

Smá fréttir frá Grikklandi

Hæ... ætli ég þurfi ekki að skella inn smá bloggi. Allavega, núna er ég búinn að vera í Grikklandi frá því á Föstudaginn 27. Júní að æfa með Alexandros Nikolaidis sem er að fara á ólimpíuleikana í tae kwon do.
Hingað til erum við bara búnir að vera 2 að æfa allann tímann en á morgun kemur einhver þungaviktari frá Serbíu og þá verður tekið á því og sparrað alveg heilan helling. Annars hef ég voðalega lítið að gera hérna meðan ég er ekki á æfingum, er að æfa annan hvern dag 2x á dag og hina dagana er ég að æfa 1x á dag þannig að ég hef nógan frítíma, en ég veit bara ekkert hvað ég á að gera við hann þar sem það er allt of heitt til að fara út og gera eithvað, ég fór út áðan og var að deyja eftir að hafa verið úti í 20 mín. Þannig að ég er bara búinn að hanga uppi á hóteli og horfa á How I met your mother og Top Gear frá því ég kom hingað. Og já, ekki má gleyma sofa og borða...
En allavega, læt heyra frá mér eithvað bráðlega, ég hef allavega nægjan frítíma til að blogga.

Kv. Haukur


» 3 hafa sagt sína skoðun

25.04.2008 03:04:15 / hadagu

Hae hae

Hae, bara sma frettir fra USA. Eg og rakel erum buinn ad hafa thad thvilikt gott herna uti, vid lentum i Los Angeles fyrir sirka viku sidan, thar vorum vid i fjorar naetur og vorum bara ad turistast og skemmtum okkur. Forum ad sja hollywood walk of fame, runtudum um i Beverly Hills og gerdum allt sem haegt er ad gera thar.
Svo forum vid til San Francisco thar sem vid gistum i 2 naetur, thad er ekkert sma flott borg, gaman ad sja allar brekkurnar tharna og Golden Gate brunna. Svo forum vid i gaer fra S. F. og keyrdum til Las Vegas thar sem vid erum i augnablikinu og aetlum ad vera naestu vikuna, vorum svo heppinn  ad fa gistingu hja einhverjari konu sem foreldrar hennar Rakel thekkja thannig ad vid faum ad gista hja henni okeypis. En eftir thad er ekkert mikid meira ad segja, er bara i frii i 30 stiga hita og sol og er ad spa ad fara ad fa mer einn kaldan. Kem med eithvad meira thegar eg kem heim fra usa eda sometime....

Love ya all...
 Haukur....

» 4 hafa sagt sína skoðun

18.02.2008 13:02:46 / hadagu

Fólk er fífl

Jæja, ég er alveg búinn að komast að því að fólk er fífl þessa dagana.

Tökum nokkur dæmi um heimskt fólk.
Ungur maður ákveður að brjótast inn í bíl kærustu minnar. Okay, það hefði kannski verið í lagi ef hann hefði ekki gert það fyrir framan höfuðstöðvar Securitas þegar það eru vaktaskipti í farandgæslu og allir öryggisverðir eru 10 metra frá bílnum. Hvað gerist, gaurinn er handtekinn af löggunni og þegar löggan spyr hann af hverju hann var að brjótast inn í bilinn segir hann að honum var kallt.

Næsta dæmi: Maður brýst inn í sjoppu með því að brjóta glugga, hann sker sig á glugganum og það blæðir úr honum frekar mikið, hann ákveður að fara í 10-11 verslun alblóðugur og afgreiðslumaður hringir auðvitað beint í lögreglu sem kemur og hirðir hann upp, þegar löggan spyr hvernig hann skar sig segir hann að hann hafi verið að hoppa yfir grindverk og lent á kaktus.

Næsta dæmi: Maður brýst inn fataverslun á laugavegi, lögreglan og öryggisverðir ná honum á staðnum og hann er handtekinn, næstu nótt er innbrot á laugarvegi, sami maður er nokkrar húsasaðir hjá honum og löggan keyrir auðvitað bara beint til hans og hendir honum inn í bíl og hann er handtekinn.

Þetta er allt búið að gerast bara í þessum mánuði og svona helmingi fleiri dæmi sem ég nenni ekki að fara að telja upp. Mig langaði bara að deila þessu með ykkur, segja ykkur frá hvað fólk gæti verið heimskt.


» 9 hafa sagt sína skoðun

29.01.2008 14:08:42 / hadagu

okay

Ég var víst búinn að lofa að blogga, þannig að ég verð víst að halda mið við loforðið mitt. Allavega, þá bilaði netið á hótelinu og ég gat ekkert bloggað meira frá ferðinni. En hérna eru allavegana fréttirnar frá tyrklandi. Anna massaði þetta hálfpartinn með því að vinna Monu frá Noregi, hún var ekkert smá flott þegar hún var að keppa, allir búnir að spá Monu sigri en svo kemur sæta stelpan frá Íslandi og lemur hana bara. En svo í næsta bardaga fór hún á móti einhverjari Rússabeyglu og hún vann nú því miður ekki.

Bjössi fór á móti Mamedy Doucara frá frakklandi, fyrrverandi heimsmeistara, og eins og með aðra bardaga á mótinu þá voru stigagjafirnar frekar furðulegar. Sumar þjóðir voru líklegri til að fá stig en aðrir og svona eins og þetta er. Bjössi komst allavega því miður ekki í gegn og tapaði fyrir Mamedy.

 Ég fór á móti Nikoladis Alexandros, tröllinu frá Grikklandi. Ég var eithvað furðulegur í bardaganum og náði aldrei að koma mér í gang. Ég náði nokkrum föstum spörkum inn á hann, en einhverja hluta vegna þá voru dómararnir eithvað illa við mig og vildu ekki gefa mér stigin mín. En þannig fer sem fer, ég tapaði bardaganum og Ísland var úr leik.

Þá var ekkert eftir nema bara fara að borða og gráta ofan í bjórinn sinn í tyrklandi. En hvað gerðist afganginn af kvöldinu fær bara fólkið sem var í Tyrklandi að vita.

 

Þangað til ég blogga næst.... Kv. Haukur


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.01.2008 22:35:23 / hadagu

kominn til tyrklands

Jaeja. vid komum til tyrklands i gaer og allir bunir ad koma ser vel fyrir. Vid fengum upplysingar i dag hvenar vid keppum. Bjossi og Anna keppa a laugardaginn en eg keppi a sunnudaginn. kem med urslit um leid og eg get. Nenni allavega ekki ad blogga meira thar sem eg er ad blogga a psp velina mina herna uti.

» 0 hafa sagt sína skoðun

09.11.2007 12:56:22 / hadagu

Djöfulsins vesen

Þvílík skemmtun hjá mér þessa vikuna, núna ætti ég að vera kominn til Danmerkur á leiðinni til Horsens þar sem ég ætti að vera að keppa. En nei, það varð nú ekki gott þar sem ég vaknaði einhverja hluta vegna með lausa tönn á mánudaginn, veit ekkert hvernig það kom til en allavega er tannholdið búið að vera að bólgna upp og eithvað ógeð. Þannig að í gær "fimmtudag" ákveð ég að fara til tannlæknnis þar sem ég er alveg illa að drepast í kjaftinum og var ekkert búinn að geta sofið um nóttina fyrir verkjum. Tannlæknirinn minn segir mér að það sé kominn sýking í tönninna og ég verði að fara á sýklalyf og hún verður að taka tönninna. Vúbbdídú, þannig að ég er núna að bryðja verkjalyf og sýklalyf í öll mál þangað til að ég er laus við þessa sýkingu, sem verður eftir u.þ.b. viku og þá á að breyta mér í tannlausann gamlan kall....... ARG....

» 0 hafa sagt sína skoðun

22.10.2007 23:18:35 / hadagu

Er ekki kominn smá tími á smá blogg

Jæja.. hvað á maður að segja, ég er ekki búinn að blogga svona frekar lengi og er soldið kominn úr æfingu, en allavega, marður verður nú að prófa svona fyrir fönnið. Allavega er ég búinn að vera rosaduglegur finnst mér upp á síðkastið, er búinn að vera að vinna alltaf aðra hvora viku í 84 tíma og ná að taka 6 æfingar á viku, og svo fer ég í frívviku og er að ná 2 æfingum á dag, svo var ég að fá alveg myndarlegan styrk umdaginn frá Íþróttabandalagi Hafnarfjarðar þannig að núna er ég víst að fara að vitleysingast eithvað til útlanda á næstunni. Stefnan er að fara til Kóreu og æfa þar í mánuð eða aðeins lengur og koma heim rétt fyrir jólin. Það væri auðvitað geðveikt að fara til kóreu, kaupa allar jólagjafirnar, láta horfa á mig eins og ég sé eithvað furðuverk! Hár, Rauðhærður, með hvítar augabrúnir og frekar hvítur. Ég er bara hinn hvíti djöfull í sinni bestu mynd :p . En það verður bara að vera þannig.

En þetta var svona alveg nóg í bili, kem með update bráðum. Eða þið sem eruð með áskrift að blogginu mínu vitið kannski hvað það þýðir. (þegar ég nenni) og ég nenni ekkert voða oft að blogga.


» 1 hafa sagt sína skoðun

14.08.2007 18:02:04 / hadagu

Jæja, hvað er svo að frétta?

Ég er allur marinn og blár eftir að hafa verið að æfa með risastórum norsara alla seinustu viku, betur þekktur sem bigfoot eða Ken Holter. Fyrsta skipti sem mér hefur verið illt frá hnjám upp að brjóstkassa og allsstaðar á milli. En svo þú skiljir út af hverju ég er að væla þá er gaurinn 205 cm , 130 kg og notar skóstærð númer 52 þannig að ég er búinn að fá nokkuð stórar bífur í mig seinustu daga. En þó svo þetta hafi verið soldið vont þá var þetta alveg ótrúlega gaman að fá að æfa með einhverjum stórum og sterkum, ég fékk líka að æfa með nokkrum fleirum þar sem það voru 4 norsarar, 1 svíi og einn kani sem komu til að æfa með okkur íslensku hlunkunum.

 

En núna er kominn vinnuvika þannig að ég er ekki að gera neitt nema halda áfram að hlunkast og þyngja mig. Það er soldið gaman að þyngja sig þegar maður er búinn að vera eins og ljósastaur í smá tíma. Fötin fara að þrengjast, og klóstið verður alltaf betri félagi. Samt er ég nú ekki að fitubollast neitt held ég, fór allavega á viktina í dag og var 92,7 kg. Það var bara gaman. en jæja, blogga meira seinna, og reyni kannski að henda myndum inn eða eithvað... 

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

03.08.2007 00:27:16 / hadagu

Hæ, ég er að vinna...

Það er ógeðslega gaman....

Eða kannski leiðist mér ógeðslega......

Hmm......

Hvað ætli það sé??........

Á ég kannski að fara að reyna að blogga eithvað??......

Eða er ég bara súkkulaðikúla.........

 

Ef ég væri snillingur, myndiru þá halda að ég væri geðveikur?

En fyrst ég er geðveikur, helduru þá að ég sé snillingur????

 

Jæja.... Þarna fékkstu smá svefngalsa A La Haukur.....

Hvað er annars að frétta af mér?

Hmm, má ég sjá, ekki mikið..... Ég er bara að vinna alltaf og reyna að æfa eins og ég get... Svo bara veit ég ekki hvað ég á að blogga meira um.... þannig að þetta verður að duga í bili..... endilega komdu samt með uppástungu um eithvað sniðugt til að segja svo ég líti ekki út fyrir að vera svona latur bloggari......

 

------------------------------------------------------------------------------------------------------------

 

Jæja, núna get ég ekki skilið við bloggið svona, það var eithvað svo ræfilslegt.

Verð allavega að spyrja þig! ef þú ert að skoða síðuna og nennir ekki að commenta, þá er þér bannað að skoða síðuna........

En vá hvað ég er búinn að vera duglegur að þyngja mig, fór á viktina áðan og var 91.5 kg, sem mér finnst vera nokkuð góð bæting miðað við þegar ég kom heim frá kína þá var ég rúm 84 kg. Enda líka eru allar þyngdir í ræktinni farnar að rjúka upp úr öllu valdi.


» 2 hafa sagt sína skoðun

07.05.2007 22:26:41 / hadagu

Sumarfrí

Jibbíjey, ég er kominn í sumarfrí frá vinnunni minni. Svo á miðvikudaginn þá er ég að fara til London og þaðan flýg ég til kína á fimmtudaginn til að keppa á heimsmeistaramótinu í tae kwon do. Ætlaði bara svona aðeins að deila þessu með ykkur, þar sem mér hlakkar svona mikið til. Og já, bara svona til að segja þér meira. þá er ég líka að fara til Tælands.....

» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
Heimsóknir
Í dag:  1  Alls: 13796
Könnun
Ætti ég að hætta að æfa TKD?


Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti